Afhending vöru.
Afgreiðslutími er að jafnaði 2-3 dagar fyrir sérmerktar vörur. Afhending vöru er eftir samkomulagi.
Ef óskað er eftir póstsendingu þá fara tilbúnar vörur í póst næsta virka dag eftir að greiðsla hefur borist.
Pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Vegaljós ehf. ber samkvæmt þessu ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.
Skilafrestur.
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.
Ekki er hægt að skila sérmerktum vörum nema um galla sé að ræða.
Verð.
Vinsamlegast athugið að vöruverð getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld.
Öll verð í vefversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Trúnaður.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Lagaákvæði.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefjast þegar móttaka vöru á sér stað.